Monday, September 26, 2011

Newsflash

Jæja ætli maður skelli ekki inn einni færslu hérna svona upp á gamanið :)

Ég byrjaði í vettvangsnámi í morgun í Álfhólsskóla. Það var mjög spennandi og margt að sjá, enda fjölmennasti skóli landsins. Þarna er mikið lagt upp úr listum og verklegum greinum og var nóg að gera, lentum meira að segja inni á sýningu þar sem 5. bekkur var búinn að semja leikrit sem var samsett úr Strumpunum, Harry Potter og Lord of the rings, og til að toppa þetta allt saman þá sungu þau "La dolce vita" í lokin :) Þetta var mikil upplifun. Ég mæti þarna í fyrramálið líka en svo á mið. og fim. fer ég í Réttarholtsskóla. Ég fann strax þegar ég kom þarna inn að ég væri komin á rétta hillu og ég hlakka svo mikið til að vinna við þetta í framtíðinni. Ég varð líka spenntari fyrir því að kenna miðstigi eða 5-7 bekk heldur en ég var áður en ég hafði hugsað mér að sérhæfa mig bara í yngstu bekkjunum. Þetta kemur allt í ljós.

Við Silfá fórum í bíó í gærkvöldi á "Drive" í Egilshöll. Þetta er svaðalegt bíó, alger paradís fyrir bíónörd eins og mig! Mikið svakalega kom þessi mynd á óvart. Við Silfá héldum að við værum að fara á frekar auðvelda spennumynd um mann sem keyrir bíl, eitthvað svipað og "Fast and the furious", en nei.. þetta var eitthvað allt annað! Mjög góð mynd samt sem áður :)

Faðir vor kom í bæinn í dag í eina af hans vinnuferðum. Einhvern vegin finnst mér eins og þessum vinnuferðum hans í borgina hafi fjölgað eftir að ég flutti suður...merkilegt! En ekki kvarta ég, gamli kaupir klósettpappír og passar mig ef einhver skyldi brjótast inn :)

Svo er ferðinni heitið norður á Akureyri á föstudaginn og ég get hreinlega ekki beðið! Ég hef ekki komið heim í einn og hálfann mánuð svo það er kominn tími til. Það verður gott að koma í herbergið sitt, hitta yndislegu fjölskylduna, borða mömmumat, göngutúr í Kjarna og ef til vill tjútt með stelpunum mínum!


En þá er best að fara að halla sér. Langt ferðalag í fyrramálið, en Álfholtsskóli er s.s. í Kópavogi og eru það 3 strætóar fyrir kl 08:00.. stundum væri alveg ómetanlegt að eiga bíl!

Yours truly,

Hólmfríður Þorgeirsdóttir.

1 comment:

  1. Drive er svooo flókin og vandræðaleg mynd!
    En ég hlakka til að fá þig heim bby ;)
    Meira svona svoo! :D

    ReplyDelete