Þá er ég vöknuð, klukkan er 08:31 og ég er búin
að undirbúa morgunmatinn: Hafragrautur með Chia fræjum og banana, grænt te og
ekki má gleyma 0,5 lítra vatnsflöskunni minni :) Þetta kemur mér sko ágætlega
inn í daginn
Mikið sem mér finnst gaman að fara á æfingu núna.
Þegar maður er kominn yfir einhvern ákveðinn múr þá getur maður bara ekki hætt!
Ég tók til dæmis hvíldardag á sunnudaginn, en maður verður víst stundum að gera
það, og mér bara fannst eins og það vantaði eitthvað inn í daginn eins
undarlegt og það hljómar. Það er ekki eins og ég sé einhver afreksíþróttamaður
en þetta er bara svo gott fyrir líkamann og ekki síst sálina en þrátt fyrir sára
vöðva eða brunnin lungu þá kemur maður endurnærður út eftir hverja æfingu :) Þá er ég oftast eitthvað að sprikla sjálf í salnum á hlaupabrettinu og stigvélinni og geri svo æfingar á dýnu, s.s. hnébeygjur, magaæfingar, armbeygjur og fleira, en svo finnst mér líka gaman að fara með vinkonunum í Body pump!
Ég reyni alltaf að borða á 2-3 klst. fresti. Lykillinn
að því er að vera undirbúinn og hafa alltaf klárt einhvers konar millimál sem
er gott að grípa í ef maður hefur lítinn tíma. Hér eru dæmi um þau millimál sem
ég fæ mér oftast:
- Epli með hnetusmjöri frá Himneskri hollustu
- Gulrætur
- Hrökkkexið mitt góða
- Hámark próteindrykkur
- Hleðsla próteindrykkur
- Smoothie úr frosnum ávöxtum
- Allir ávextir
Ég hef líka komist að því að ef maður á ávexti,
ég á oftast bara epli, appelsínur og banana, þá er maður í góðum málum. Ótrúlegt
hvað niðurskorin appelsína sem er búin að fá að kólna inni í ísskáp er góð!
Hvað varðar húsbandið mitt hann Alexander, hið
mikla meistaraefni, þá gafst hann upp á degi tvö. Hann á bara of erfitt með að
sleppa kókinu þessi elska <3 Hann er þó duglegur að hvetja mig áfram og
segja mér hvað ég er dugleg, svo hann er bara meistari í því í staðinn!
Ég verð nú að minnast á það að hún Ragnheiður
Hekla litla frænka kom norður á Akureyri til okkar um helgina og eyddi tíma með
okkur. Við fórum í sund á Þelamörk, út að borða, versla í bænum og í Jólahúsið
auk þess sem að hún fékk að hjálpa mér við að elda uppáhalds réttinn sinn, Pestókjúkling
með pasta. Svo komum við henni aðeins á óvart með snemmbúna afmælistertu og smá
gjafir, en hún á afmæli þann nítjánda og ekki komumst við suður til að vera með
henni þá. Hún var svo hissa og það var svo gaman! Takk fyrir samveruna
Ragnheiður Hekla :)
Hér er slóðin á þennan dýrindis Pestókjúkling hennar
Evu Laufeyjar sem gæti ekki verið auðveldara að matreiða. Ég hef þó yfirleitt
bara soðið Tagliatelle pasta með og salat og hvítlauksbrauð. Nammigottímalla! - http://www.evalaufeykjaran.com/2011/11/kjuklingur-i-flyti.html -
Þar til næst :)
Hólmfríður MEISTARI






