Tuesday, October 1, 2013

Dagur eitt

Undirbúningur fyrir daginn

Þá er Meistaramánuður hafinn af alvöru. Ég vaknaði klukkan 7 í morgun, henti öllum karamellubréfunum af eldhúsborðinu síðan í gærkvöldi og fór í að gera hafragrautinn góða.
Ég hef mjög góða tilfinningu fyrir þessum mánuði, þó að hann verði kannski ekki sá auðveldasti. Enda gat ég ekki sofnað í gærkvöldi og  held ég að það hafi frekar verið af tilhlökkun en stressi :)
Ég skellti í gómsætt hrökkbrauð í morgun sem er gott millimál hvar og hvenær sem er. Ég set oft á það tómata, smurost, papriku, kotasælu eða hvað sem er. Svo er það líka mjög gott bara eintómt! Hér er uppskriftin:




1 dl haframjöl
1 dl hörfræ
1 dl sesamfræ
1 dl graskerjafræ
1 dl sólblómafræ
1 1/2 dl fínmalað spelt
2 dl grófmalað spelt
1 tsk vínsteinslyftiduft
2 tsk salt
2 dl vatn
1 dl olía

Þurrefnunum er blandað saman í skál með sleif og svo olíu og vatni. Skiptið deiginu í 2 hluta sem eru flattir út með höndunum á milli tveggja bökunarpappíra á plötu. Gott er að skera með hníf í deigið þegar búið er að fletja það út og skipta því þannig niður í hæfilega stóra bita áður en það fer í ofninn. Þá er auðvelt að brjóta brauðið niður þegar það kólnar. Bakið svo báðar plöturnar í einu á blæstri og 170° í 15-20 mín.

Í gær prófaði ég að gera Sorbet úr frosnu mangó og berjum. Ég skellti bara mangó, jarðarberjum og smá hindberjum í blandarann ásamt vatni og setti á fullt þar til það var orðið mjúkt og gott. Ég setti svo aðeins af Agave sýrópi út í, og aðeins meira af því fyrir Alexander en honum fannst þetta svolítið súrt. Þetta mun klárlega vera eitt af því sem ég mun grípa í þennan mánuðinn þegar sykurþörfin er að gera út af við mig. Mega gott!

Ég náði að plata Alexander til að taka þátt í meistaramánuði með mér og setti hann sér markmið. Hann ætlar þó ekki að taka þetta af alveg eins mikilli alvöru og ég, en allt er betra en ekkert! Ég er búin að setja öll markmiðin okkar upp í Excel og á kvöldin skoðum við hvernig okkur gekk hvern dag fyrir sig. Það verður gott að hafa smá stuðning í þessu öllu saman.


Næst á dagskrá er það langur göngutúr með Nóa mínum og svo beint upp í Ásveg að standsetja heimilið fyrir nafnaveisluna sem verður þar um næstu helgi :)

-Þar til næst

5 comments:

  1. Nenniru að setja fleiri skemmtilegar uppskriftir inn :D

    Hlakka til að prófa þennan sorbet á eftir :D

    ReplyDelete
    Replies
    1. Já ég skal reyna að fá góðar hugmyndir og set þær hér inn :D

      Delete
  2. Snillingar! Hlakka til að fylgjast með ykkur í þessu ;)
    Og þá verður 5.okt sérstaklega áhugaverður ;P

    ReplyDelete