Ég ætlaði að vera löngu búin að setja
inn aðra færslu hér en það er bara búið að vera nett brjálað að gera, undirbúningur
fyrir nafnaveislu elsku Andreu Óskar sem fékk nafnið sitt síðasta laugardag, og
svo hefur þessi vika farið í vinnu, æfingar og lærdóm. Annars lofa ég að vera
duglegri að skrifa hingað inn það sem eftir er mánaðar.
Jæja ég hef lifað af 10 daga sem
meistari lífs míns! Mikið er það ánægjulegt :)
Ég hef náð að standa við öll mín
markmið, NEMA ég hef ekki getað krossað samviskusamlega í reitina hjá ,,Útivera
1 klst. á dag’’ í Excel-skjalinu mínu þar sem að ég hef ekki alltaf náð klukkutíma
á dag, EN þó alltaf eitthvað enda dregur Nói mig út.
Hvað varðar sykurinn þá hélt ég að
það yrði mikið erfiðara, en ég hef óafvitandi bara ekki verið að borða mjög
mikinn sykur í mínu daglega matarræði. Það eru þá bara kökurnar, nammið,
gosdrykkirnir og það sem ég hef þurft að forðast og það er nú ekki svo mikið mál
:) ,,No problem for John Boblem’’ eins og maðurinn sagði
Þar sem margir elskuðu
uppskriftina af hrökkbrauðinu sem ég setti inn síðast, sem er þó alls engin
uppskrift eftir mig sjálfa, langar mig að deila með ykkur uppskrift sem ég fékk
hjá Jófríði vinkonu minni af dýrindis möndlukökum.
Möndlukökur
250g möndlumjöl,
2egg (3 ef þau eru lítil)
2-3 msk smjör,
2tsk vínsteinslyftid.
1/2-1 dl kókospálmasykur,
lúka af rúsínum eða dökku súkkulaði.
Þetta blandast allt saman og verður svolítið klístrað.
Mótið fremur litlar kúlur með skeið og setjið á bökunarplötu. Bakist á 180° í
15-20 mínútur.
En jæja þá ætla ég að fara að drífa mig á
kvöldæfingu. Það er eitthvað svo gott að vera í hálftómum líkamsræktarsal og
horfa á myrkrið úti þá dettur maður alveg í annan heim. Hér er lag sem kemur mér í gírinn þessa dagana en góð pepp-lög eru nauðsynleg til þess að koma manni af stað!

you go girl :D
ReplyDeletekv. silfá sem situr einmitt upp í sófa með öl í hægri hönd ;)
haha góður silfá! þú tekur 3 sopa fyrir Bobbu Búðing
ReplyDelete