Wednesday, September 25, 2013

Meistaramánuður

Í ár hef ég ákveðið að taka þátt í hinum margumtalaða Meistaramánuði. Fyrir þá sem ekki vita eru markmiðin með Meistaramánuði sem hér segir:

,,Meistaramánuður felst í því að þátttakendur vakni fyrr, neyti ekki áfengis og hreyfi sig vel ásamt því að borða og njóta lífsins betur en aðra daga. Meistaramánuðurinn er mánuður þar sem við setjum okkur markmið og búum til góðar venjur fyrir alla hina mánuðina. Markmiðin geta verið stór sem smá og geta verið allt frá því að taka sér tak í ræktinni eða bara að kíkja oftar í heimsókn á ömmu og afa.
Eina þátttökuskilyrðið er að fólk sé tilbúið að skora sjálft sig á hólm og leitist við að sigrast á raunum mánaðarins. Meistaramánuður stendur yfir í 30 daga og mun ögra þátttakendum líkamlega og andlega í átt að því að verða meistarar eigin lífs.’’

Mig langar til þess að nota þessa síðu til að deila markmiðum mínum með vinum og vandamönnum og segja ykkur frá því sem ég geri til að færast skrefi nær heilbrigðara líferni en fyrst og fremst til þess að hvetja sjálfa mig áfram :)

Hér koma markmiðin mín fyrir meistaramánuð 2013:

Ekkert áfengi
Enginn hvítur sykur
Alltaf ná 8 klst. svefni, og ekki mínútu lengur
Æfing 6 sinnum í viku
Ein klst. útivera á dag
Klára að lesa bók sem ég byrjaði á í fyrra
Hafa jákvæðnina og hrós til annarra í hámarki

Ævintýrið byrjar semsagt þann fyrsta október. Ekki væri verra ef þið væruð dugleg að kommenta og segja mér hvað ég sé æðisleg og dugleg :) þá held ég áfram að verða betri manneskja og ekki getið þið, kæru lesendur, tapað á því!



ÁFRAM ÉG

4 comments: